Ráðstefna á vegum Veðurstofu Íslands, Háskóla Íslands og NORDRESS

Tilgangur ráðstefnunnar er að auka þekkingu á framhlaupum og viðbúnaði við hættu af þeirra völdum hér á landi og stuðla að umræðu og stefnumörkun um rannsóknir og vöktun á framhlaupahættu.

 

Fjallað verður um:
Fyrirboða framhlaupa
Vöktun mögulegra framhlaupssvæða
Kortlagningu mögulegra framhlaupssvæða
Líkanreikninga á framhlaupum

Framhlaup á undanförnum árum t.d í Hítardaln og  Öskju sem og vísbendingar um hættun á berghlaupi úr Svínafellsheiði
í Öræfajökli kalla á  auknar rannsóknir og vöktun á hættu af framhlaupum hérlendis.  Veðurstofa Íslands og Háskóli Íslands
skipuleggja af þessu tilefni ráðstefnu um framhlaup,

vöktun á hættu, kortlagningu hugsanlegra framhlaupssvæða og
hættumat. Erlendir og íslenskir sérfræðingar fjalla um framhlaup frá ýmsum sjónarhornum. Fyrir hádegi verður fjallað um
vöktun á svæðum þar sem hætta er talin á framhlaupum. Eftir hádegishlé verður sagt frá kortlagningu, líkanreikningum
og hættumati vegna framhlaupa.

_____________________________________________________________________________________

Á ráðstefnunni flytja eftirtaldir aðilar erindi:

Lars Harald Blikra, NVE í Noregi
Reginald Hermanns, NGU í Noregi
Bøhme Martin Mergili, Háskólinn í Vínarborg
Rudolf Schmidt, Austurríska ofanflóðastofnunin WLV
Giovanni Crosta, Háskólinn í Mílanó
Costanza Morino, The Open University, London
Erin Linsay, Norwegian University of Science and Technology
Innlendir sérfræðingar frá Veðurstofunni og Háskóla Íslands

BACK